Bakkavör hefur náð samkomulagi við verkalýðsfélagið The Unite union í Lincolnshire í Bretlandi. Samkomulagið felur í sér að Bakkavör dregur verulega úr áformum sínum um uppsagnir í verkmiðju sinni í héraðinu.
Í frétt um málið á BBC segir að í stað þess að segja upp 170 starfsmönnum muni Bakkavör aðeins segja upp 35 þeirra. Þar að auki muni yfir 140 starfsmenn láta af störfum af eigin hvötum með starfslokasamningi.
Talsmaður verkalýðsfélagsins er ánægður með niðurstöðu málsins, einkum að 140 starfsmenn fái nú starfslokasamning í stað þess að vera sagt upp einhliða.
Bakkavör segir að fyrirtækið hafi gefið verulega eftir í samningaviðræðunum. Upphaflega hafi staðið til að segja upp 350 manns en því hafi síðan verið breytt í 170 starfsmenn.