Eik Banki í Færeyjum verður seldur dótturfélagi Tryggingafélags Færeyja, TF Holding. Félagið var hið eina sem bauð í bankann og hljóðar tilboðið upp á 400 til 500 milljónir danskra kr. eða um 8 til 10 milljarða kr.
Þetta kom fram í fréttum RUV í morgun. Þar segir að erindrekar stofnunar (Finansiel Stabilitet), sem dönsk stjórnvöld settu á laggirnar eftir hrun til að bjarga dönskum bönkum, og selja þá, komu til Færeyja í fyrrakvöld, og áttu fund með landsstjórninni í gær.
Elís Poulsen fréttaritari Ríkisútvarpsins í Færeyjum segir dönsku fulltrúana hafa viljað fá 800 milljónir danskra króna fyrir Eik Banki og þeir hafi reynt að fá landstjórn Færeyja og Seðlabankann til að taka þátt í kaupunum. Því hafnaði landsstjórnin.
Við þetta má svo bæta að samkvæmt frétt á vefsíðuni FinansWatch er komin lausn í málefnum Eik Banki. Henning Kruse Petersen stjórnarformaður Finansiel Stabilitet staðfestir það en vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Petersen segir að eftir sé að kynna lausnina í stjórn Finansiel Stabilitet en hann telur að stjórnin muni samþykkja hana.
Eik Banki fór í þrot í september síðastliðnum.