Gattuso: Missti stjórn á sjálfum mér Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. febrúar 2011 09:51 Nordic Photos / Getty Images
Gennaro Gattuso, fyrirliði AC Milan hefur beðist afsökunar á því að hafa skallað Joe Jordan, aðstoðarþjálfara Tottenham, eftir leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Tottenham vann leikinn, 1-0, en leikmönnum var mörgum heitt í hamsi og áttu þeir Gattuso og Jordan einnig orðaskipti á meðan leiknum stóð. „Ég missti stjórn á sjálfum mér," sagði Gattuso við fjölmiðla eftir leikinn í gær. „Ég get ekki afsakað hegðun mína og verð að taka afleiðingunum." „Ég var taugaóstyrkur. Ég vildi ekki rífast við leikmennina og því reifst ég við hann. En hegðun mín var röng." Gattuso fékk að líta gult spjald í leiknum og mátti ekki við því. Hann verður í leikbanni í síðari leik liðanna á heimavelli Tottenham en líklegt er að hann fái enn lengra bann fyrir hegðun sína eftir leikinn í gær. „Ég biðst afsökunar á því að hafa skallað hann. Það hefði ég ekki átt að gera. Ég talaði einnig við Joe á meðan leiknum stóð en segi ekki hvað var sagt." „Ég á ekkert sökótt við leikmenn Tottenham - bara Joe Jordaon. Við töluðum saman á skosku," sagði Gattuso sem lék áður með Glasgow Rangers en Jordan er sjálfur skoskur. Jordan þekkir þó vel til á Ítalíu og lék með AC Milan í tvö ár, frá 1981 til 1983, og Hellas Verona, sem Emil Hallfreðsson leikur með í dag, í eitt tímabil.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Fleiri fréttir Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjá meira