Natura Keratin er ný byltingarkennd stofumeðferð sem sléttar hár án þess að taka hárböndin í sundur og virkar fyrir hið krullaðasta hár sem og allar hárgerðir og dugir í þrjá til fimm mánuði.
Nokkrar hárgreiðslustofur hafa tekið þessa meðferð upp og þeirra á meðal er Salon Reykjavík á Grandagarði, en Keratin Islandia er umboðsaðili Natura Keratin.
„Ólíkt því sem sléttunaraðferðir geta jafnan gert, að taka hárböndin í sundur og setja þau aftur saman, gerir meðferðin þveröfuga hluti fyrir hárið," segir Arnar Tómasson hjá Salon Reykjavík.

Arnar segir meðferðina vera afar vinsæla vestanhafs, í Bandaríkjunum sem og í Brasilíu.

Keratín er sett í hvern einasta lokk, hárið þurrkað með efninu í og hver einasti lokkur hitaður með sléttujárni til að festa keratínið utan á hárinu.
Síðan má ekki þvo hárið næstu þrjá daga á eftir.

„Sléttunarmeðferðin kemur sérstaklega vel út fyrir þá sem eru með þurrt, opið og slitið hár, þar sést mestur munur.
Einnig gefur meðferðin fyllingu þannig að hárið hangir ekki lint niður. Þeir sem vilja svo fá liðina öðru hverju fram geta það vel, því meðferðin tekur liðina ekki alveg í burtu.
Það þarf að fara aðeins yfir með sléttujárninu á hverjum degi til að fá það alveg slétt," segir Arnar.

Meðferðin endist lengur hjá meðhöndluðu hári en efnameðhöndluðu.
„Það sem helst þarf að passa upp á eftir meðferð er að forðast sjampó með ákveðnum efnum í, súlfötum og natríumklóríði, en þessi efni leysa keratínið of hratt upp."
juliam@frettabladid.is