Indra Nooyi, forstjóri PepsiCo, móðurfélags Pepsi á heimsvísu, er álitinn valdamesta kona í einkageiranum á heimsvísu samkvæmt Forbes. Hún stýrir fyrirtæki sem veltir árlega meira en 60 milljörðum dollara og er stærsta matvælafyrirtæki Bandaríkjanna. Starfsmenn á heimsvíu eru yfir 300 þúsund.
Meðalaldur kvennanna er 41,5 ár. Skemmtikraftarnir Lady Gaga og Beyoncé Knowles eru báðar á listanum en þær eru álitnar afar áhrifamiklar þegar kemur að tískustraumum í fataiðnaði og fjölmiðlun.
1. Indra Nooyi. 56 ára. Forstjóri Pepsi.
2. Sheryl Sandberg 42 ára. Framkvæmdastjóri hjá Facebook.
3. Melinda Gates 47 ára. Eiginkona Bill Gates.
4. Irene Rosenfeld 58 ára. Forstjóri Kraft Foods.
5. Lady Gaga 25 ára. Skemmtikraftur.
6. Jill Abrammson 57 ára. Aðstoðarritstjór New York Times.
7. Oprah Winfrey 57 ára. Þáttastjórnandi.
8. Susan Wojcicki 43 ára. Framkvæmdastjóri hjá Google.
9. Beyoncé Knowles 30 ára. Skemmtikraftur.
10. Georgina Rinehart 57 ára. Milljarðamæringur og eigandi námufyrirtækis í Ástralíu.
Forstjóri PepsiCo er valdamesta konan í einkageiranum
