Þolinmæði Dana gagnvart svartri vinnu virðist vera á þrotum. Það sem af er árinu hefur tilkynningum til hins opinbera um svarta atvinustarfsemi fjölgað um 30% miðað við allt árið í fyrra. Tilkynningarnar eru orðnar yfir 7.000 talsins í ár.
Jan P. Jensen hjá skattstofu Sjálands segir að fjórar af hverjum fimm tilkynningum séu nafnlausar en flestar þeirra leiða til aðgerða af hálfu skatttyfirvalda.
Stærstur hluti tilkynninganna koma úr byggingariðnaðinum en einnig virðist sem margir nýti sér svarta atvinnukrafta á bílaverkstæðum landsins.
Mikil aukning á tilkynningum um svarta vinnu í Danmörku

Mest lesið

Vonast til að hefja slátrun árið 2028
Viðskipti innlent

Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap
Viðskipti innlent

Kalla inn geislavirka límmiða
Neytendur




Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com
Viðskipti innlent



Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir
Viðskipti innlent