Mark Webber á Red Bull náði besta tíma á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Jose Carlos Pace brautinni í Brasilíu í dag. Síðasta Formúlu 1 mót ársins fer fram á brautinni á sunnudaginn.
Jenson Button á McLaren náði næstbesta tíma á æfingunni og varð 0.014 úr sekúndu á eftir Webber. Lewis Hamilton á McLaren náði þriðja besta tíma, en Sebastian Vettel á Red Bull var fjórði fljótastur. Vettel vann mótið í Brasilíu í fyrra.
Heimamaðurinn Felipe Massa á Ferrari náði fimmta besta tíma á fyrstu æfingunni, en þrír brasilískir ökumenn keppa um helgina. Auk Massa, þá eru Rubens Barrichello á Williams og Bruno Senna á Renault frá Brasilíu.
Þrír ökumenn sem ekki keppa á sunnudaginn fengu tækifæri til að aka á fyrstu æfingunni. Jan Eric Vergne ók Torro Rosso, Luiz Razia stýrði Renault bíl og Jan Charouz HRT bíl.
Tímarnir af autosport.com
1. Mark Webber Red Bull-Renault 1m13.811s 26
2. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m13.825s + 0.014 25
3. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m13.961s + 0.150 20
4. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m14.025s + 0.214 28
5. Felipe Massa Ferrari 1m14.507s + 0.696 34
6. Fernando Alonso Ferrari 1m14.541s + 0.730 26
7. Michael Schumacher Mercedes 1m15.162s + 1.351 28
8. Nico Hulkenberg Force India-Mercedes 1m15.178s + 1.367 28
9. Paul di Resta Force India-Mercedes 1m15.241s + 1.430 31
10. Nico Rosberg Mercedes 1m15.321s + 1.510 29
11. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m15.468s + 1.657 29
12. Romain Grosjean Renault 1m15.547s + 1.736 18
13. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m15.663s + 1.852 27
14. Bruno Senna Renault 1m15.732s + 1.921 32
15. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari 1m15.747s + 1.936 31
16. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m15.836s + 2.025 27
17. Sergio Perez Sauber-Ferrari 1m15.979s + 2.168 35
18. Jean-Eric Vergne Toro Rosso-Ferrari 1m16.052s + 2.241 33
19. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m16.514s + 2.703 33
20. Luiz Razia Lotus-Renault 1m17.595s + 3.784 31
21. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m18.140s + 4.329 29
22. Jerome D'Ambrosio Virgin-Cosworth 1m18.653s + 4.842 29
23. Daniel Ricciardo HRT-Cosworth 1m18.952s + 5.141 33
24. Jan Charouz HRT-Cosworth 1m19.577s + 5.766 3
Webber fljótastur á fyrstu æfingunni fyrir lokamótið í Brasilíu

Mest lesið

Sigurður Breki á spítala eftir harkalegt samstuð
Íslenski boltinn





„Við máttum ekki gefast upp“
Körfubolti




„Við elskum að spila hérna“
Fótbolti