Handbolti

Guðjón Finnur kominn aftur í Fram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðjón Finnur í leik með Fram árið 2008.
Guðjón Finnur í leik með Fram árið 2008. Mynd/Anton
Guðjón Finnur Drengsson er kominn aftur á heimaslóðir en hann hefur gengið til liðs við Fram eftir stutta dvöl hjá Selfossi.

Félagaskiptin gengu í gegn í gær og ætti hann því að geta spilað með Fram gegn HK í leik liðanna í N1-deild karla í kvöld.

Guðjón Finnur er uppalinn Framara en hefur einnig leikið með þýska liðinu Kassell í C-deildinni þar í landi.

Fram hefur byrjað mjög vel í N1-deildinni í haust og unnið alla sína leiki til þessa á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×