Handbolti

Framarar unnu á Hlíðarenda og eru áfram með fullt hús

Elvar Geir Magnússon skrifar
Mynd/Valli
Framarar eru með fullt hús stiga í N1-deild karla eftir fjórar umferðir en í kvöld unnu þeir sterkan útsigur á Val á Hlíðarenda 21-20. Í upphafi seinni hálfleiks hélt blaðamaður að þessi leikur myndi ekki bjóða upp á neina spennu en sú varð ekki raunin.

Þetta var langþráður sigur Framliðsins í Vodafonehöllinni en Fram var búið að tapa öllum átta leikjum sínum í húsinu frá því í lok ársins 2007.

Jafnræði var með liðunum í byrjun og báðir markverðir að finna sig ágætlega. Sóknarleikur Vals var þó ekki upp á marga fiska og var borinn uppi af Antoni Rúnarssyni sem setti fimm mörk snemma.

Fram sótti vítin grimmt og komst í 8-5 þar sem helmingur marka liðsins kom af vítalínunni. Með því að skora fjögur mörk í röð náðu Framarar ákveðnu forskoti og nýttu sér hversu hugmyndasnauðir heimamenn voru í sóknaraðgerðum sínum.

Safamýrarpiltar voru með fjögurra stiga forystu í hálfleik og var ekkert sem benti til þess að þeir myndu hleypa heimamönnum nálægt sér.

Valsmenn héldu þó áfram, spiluðu öfluga vörn og náðu að minnka muninn í aðeins tvö mörk þegar um tíu mínútur voru eftir svo vonin lifði. Áhorfendur á bandi Vals lifnuðu heldur betur til lífsins þegar Sturla Ásgeirsson minnkaði muninn í 19-20 þegar það voru rúmar fimm eftir. Í kjölfarið varði Hlynur Morthens svo vítakast.

Spennan í lokin var mikil og Valsmenn fengu tækifæri til að jafna sem þeir nýttu ekki og Fram vann langþráðan sigur í spennandi leik á Hlíðarenda.



Valur - Fram 20-21 (10-14)

Mörk Vals (skot): Anton Rúnarsson 7 (12), Sturla Ásgeirsson 5/2 (9/2), Gunnar Harðarson 2 (2), Finnur Ingi Stefánsson 2 (4), Aron Sveinsson 1 (1), Valdimar Fannar Þórsson 1 (6), Orri Freyr Gíslason 1 (1), Atli Már Báruson 1 (1), Sigfúr Sigurðsson 0 (1), Magnús Einarsson 0 (6).

Varin skot: Hlynur Morthens 21/1

Hraðaupphlaupsmörk: 3 (Sturla. Anton, Gunnar)

Fiskuð víti: 2 (Finnur Ingi, Orri)

Utan vallar: 4 mínútur

Mörk Fram (skot): Jóhann Gunnar Einarsson 5 (8), Róbert Aron Hostert 4 (7), Einar Rafn Eiðsson 4/4 (6/5), Ingimundur Ingimundarson 3 (4), Jóhann Karl Reynisson 2 (2), Ægir Hrafn Jónsson 1 (2), Sigurður Eggertsson 2 (5), Matthías Bernhöj Daðason 0 (1), Sigfús Páll Sigfússon 0 (2), Stefán Stefánsson 0 (2).

Varin skot: Magnús Erlendsson 18

Hraðaupphlaupsmörk: 2 (Ingimundur 2)

Fiskuð víti: 5 (Ægir 3, Jóhann, Stefán)

Utan vallar: 2 mínútur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×