Leysa þarf vanda evruríkja án tafar 25. september 2011 12:00 Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS.
Verði skuldavandi evruríkjanna ekki leystur án tafar gæti það leitt til þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ráði ekki yfir nægum fjármunum til að aðstoða önnur ríki í vanda. Þetta er mat seðlabankastjóra Kína og framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Í yfirlýsingu sem samþykkt var á ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington í gær kemur fram að ríkin á evrusvæðinu muni gera allt sem í þeirr valdi stendur til að leysa skuldakreppuna sem ógni efnahagslífi alls heimsins. Í yfirlýsingunni segir að aðildarríki Alþjóðagjaldeyrissjóðsins muni starfa saman til að koma á stöðugleika á mörkuðum og efla traust. Þótt aðstæður aðildarríkja sjóðsins séu mismunandi séu hagkerfi þeirra samtvinnuð og því muni ríkin starfa saman að því að auka traust og stöðugleika á og glæða havöxt á heimsvísu. Fjölmenn sendinefnd frá Íslandi var á fundinum í Washington, en bæði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, sóttu fundinn ásamt embættismönnum úr báðum ráðuneytum. Þá voru þar helstu framkvæmdastjórar Seðlabankans og Már Guðmundsson, seðlabankastjóri. Nýverið lauk formlega samstarfsáætlun AGS og Íslands, sem hófst í lok árs 2008, með sjöttu endurskoðun sjóðsins. En fram kemur í lokaskýrslu sjóðsins að öll meginmarkmið áætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS hafi náð fram að ganga. Zhou Xiaochuan, seðlabankastjóri Kína, sagði á ársfundi sjóðsins í gær, að verði skuldakreppan á evrusvæðinu ekki leyst tafarlaust gæti það leitt til þess að AGS hafi ekki næga fjármuni til að bjarga öðrum ríkjum í fjárhagsvandræðum en mikil eftirspurn er nú eftir aðstoð frá sjóðnum. Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS, tók undir þetta og sagði að þótt útlánageta sjóðsins væri sterk, eða um 400 milljarðar dollara, þá fölnaði hún í samanburði við áætlaða fjármögnunarþörf margra ríkja sem væru greiðsluvandræðum. Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, ávarpaði fund stýrinefndar AGS í gær og sagði að evruríkin yrðu að leysa skuldavandann því að öðrum kosti myndi það draga úr þrótti allra annarra björgunaraðgerða, bæði í Evrópu og á heimsvísu, að því er fram kemur í Washington Post. Geithner hefur lagt á það ríka áherslu að ríki Evrópu taki nauðsynleg skref til að sanna að þau standi á bak við veikari ríki eins og Grikkland, en Evrópusambandið og AGS hafa þegar skuldbundið sig til að veita mörg þúsund milljarða króna í fjárhagsaðstoð til handa Grikkjum.
Mest lesið Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Neytendur Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Vilja selja Landsbankann Viðskipti innlent Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Viðskipti innlent Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Viðskipti innlent Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Viðskipti innlent Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ellison klórar í hælana á Musk Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Risinn sem var of stór til að falla er fallinn Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Sjá meira