Christian Horner, yfirmaður Red Bull Formúlu 1 liðsins segir að liðið og Sebastian Vettel vilji landa meistaratitli ökumanna með sigri í næsta móti sem er í Japan eftir hálfan mánuð. Vettel nægir tíunda sætið í mótinu og eitt stig, til að verða meistari þegar fimm mótum er ólokið á tímabilinu.
Aðeins Jenson Button getur skákað honum í titilslagnum. Til þess þarf hann að vinna öll 5 mótin sem eftir eru og Vettel má ekki fá stigi í neinu þeirra.
„Ég leyfi mér að hugsa það að við verðum að reyna verulega mikið til að tapa þessu niður. Það er aðeins tveir inn í myndinni núna. Það vantar aðeins eitt stig, en þetta er ekki búið fyrr en það er búið", sagði Horner í frétt á autosport.com.
„Við munum fara til Japan með sömu aðferðarfræði í fararteskinu og í Singapúr og í öllum öðrum mótum. Að gera okkar besta og gæta að því að ná í þetta eina stig. En við munum líka stefna á sigur að auki."
„Það væri frábært að að klára þetta með stæl. Þetta er búið að vera frábært tímabil til þessa."
Suzuka brautin í Japan ætti að henta Red Bull bíl Vettel og Mark Webber vel, en Webber varð í þriðja sæti í mótinu í Singapúr í gær, á eftir Vettel og Jenson Button hjá McLaren liðinu.
„Það eru fimm mót eftir og við munum leggja okkur alla fram til loka meistaramótsins", sagði Horner.
