Eyjastúlkur unnu upp þriggja marka forskot Vals - Grindavík fallið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. september 2011 15:39 Eyjastúlkur gáfust ekki upp í dag. Mynd/Anton
Eyjastúlkur náðu ótrúlegu 4-4 jafntefli á móti Val í lokaumferð Pepsi-deild kvenna í dag en Valskonur náðu tvisvar þriggja marka forskoti í leiknum. Grindavíkurstúlkur náðu ekki að framkalla kraftaverk og eru fallnar úr Pepsi-deildinni en KR-stúlkur björguðu sæti sínu á markatölu. Valur komst í 3-0 og 4-1 á móti ÍBV en Eyjastúlkur gáfust ekki upp og tryggðu sér 4-4 jafntefli með því að skora þrjú mörk á síðustu 25 mínútum leiksins. Grindavík þurfti að vinna upp þrjú stig og sextán mörk á KR til þess að bjarga sér frá falli. Shaneka Gordon tryggði Grindavík 2-1 sigur með tveimur mörkum á Fylkisvelli en það var ekki nóg þótt að KR hafi tapað stórt annan leikinn í röð. KR tapaði 0-4 fyrir Þór/KA í dag og hafði tapað 0-5 fyrir Val í leiknum á undan. Grindavík fékk á markamun þar sem að KR-liðið endaði með ellefu marka betri markatölu, 17-38 (-21) á móti 20-52 (-32). Þróttur er líka fallið úr deildinni en kvaddi Pepsi-deildina með 2-1 útisigri á Aftureldingu. Upplýsingar um markaskorarar eru að hluta til fengnar af vefsíðunni fótbolti.net.Úrslit og markaskorar í Pepsi-deild kvenna í dag:Fylkir-Grindavík 1-2 1-0 Lovísa Sólveig Erlingsdóttir (25.), 1-1 Shaneka Jodian Gordon, víti (40.),1-2 Shaneka Jodian Gordon (78.)Valur-ÍBV 4-4 1-0 Björk Gunnarsdóttir (3.), 2-0 Sjálfsmark (5.), 3-0 Björk Gunnarsdóttir (25.), 3-1 Berglind Björg Þorvaldsóttir (36.), 4-1 Kristín Ýr Bjarnadóttir (63.), 4-2 Danka Podovac (66.), 4-3 Berglind Björg Þorvaldsóttir (84.), 4-4 Danka Podovac (87.)Stjarnan-Breiðablik 5-0 1-0 Ashley Bares (30.), 2-0 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (51.), 3-0 Harpa Þorsteinsdóttir (53.), 4-0 Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir (72.), 5-0 Harpa Þorsteinsdóttir (79.)Þór/KA-KR 4-0 1-0 Sandra María Jessen (4.), 2-0 Manya Makoski (28.), 3-0 Marie Perez Fernandez (43.), 4-0 Diane Caldwell (77.)Afturelding-Þróttur R. 0-2 0-1 Soffía Kristinsdóttir (71.), 0-2 Gunnhildur Ásmundsdóttir (82.), 1-2 Carla Lee (90.)
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Sjá meira