Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur þurft að kalla á fjóra menn inn í landsliðshópinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Ungverjum á miðvikudag.
Gylfi Þór Sigurðsson, Sölvi Geir Ottesen, Kolbeinn Sigþórsson, Guðmundur Reynir Gunnarsson og Hannes Þór Halldórsson hafa allir dregið sig úr hópnum vegna meiðsla.
Í þeirra stað koma Matthías Vilhjálmsson, Arnór Smárason, Hjörtur Logi Valgarðsson og Elfar Freyr Helgason.
Leikurinn fer fram á Ferenc Puskas vellinum í Búdapest og hefst kl. 17:45 að íslenskum tíma. Þetta er tíunda viðureign þjóðanna og hafa Ungverjar haft betur í sex leikjum en Íslendingar í þremur.
Fimm leikmenn búnir að draga sig út úr landsliðshópnum
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið


Norsk handboltastjarna með krabbamein
Handbolti

Gæti orðið dýrastur í sögu KR
Íslenski boltinn



Stjarnan staðfestir komu Caulker
Íslenski boltinn



