Stefano Domenicali, yfirmaður Ferrari Formúlu 1 liðsins þarf að finna leið til að Fernando Alonso geti sótt á stigaforskot Sebastian Vettel í stigakeppni ökumanna. Alonso hefur í þremur síðustu mótum náði í annað sætið í tvígang og unnið eitt mót. Alonso er 86 stigum á eftri Vettel, þegar 9 mótum er ólikið á keppnistímabilinu.
„Það er ljóst að við verðum að sækja í hverju móti. Því fleiri ökumenn sem verða í baráttunni á toppnum, þess auðveldara verður að minnka muninn. Eins og er þá er bilið mikið", sagði Domenicali í frétt á autosport.com í dag.
Alonso varð í öðru sæti á eftir Lewis Hamilton í þýska kappakstrinum á sunnudaginn á Nürburgring, en hann vann mótið á undan á Silverstone brautinni í Bretlandi. Domenicali var ánægður með að Ferrari bíllinn virkaði ágætlega þó kalt væri í veðri í Þýskalandi, en vandamál hefur verið að koma hita í dekkin hjá Ferrari í mörgum mótum.
„Ég er ánægður að í tveimur síðustu mótum hefur Fernando náð í flest stig allra og það þýðir að við erum á réttum stað. Seinni hluti mótsins verður áhugaverður fyrir okkur. Ég tel að Red Bull sé sterkasta liðið, en McLaren sýndi styrk sinn og ég vanmet ekki keppinautanna."
Ferrari keppir í Ungverjalandi í um næstu helgi og mun halda áfram að þróa bílinn í næstu mótum til að keppa við McLaren og Red Bull í stigaslag ökumanna og bílasmiða.
Ferrari í sóknarhug í næstu mótum

Mest lesið



„Þá leið mér frekar illa eftir leik“
Fótbolti

Skrifar undir fimm ára samning við Liverpool
Enski boltinn

Þeir bestu (1. sæti): Afrekaði allt
Íslenski boltinn

Öll mörkin í Bestu: Stjarnan tætti KR í sig og ÍA valtaði yfir Blika
Íslenski boltinn

Fyrrum leikmaður Liverpool að ganga í raðir Stjörnunnar
Íslenski boltinn

Bjarki var næstum því farinn í Val áður en gullöld ÍA hófst
Íslenski boltinn

