Jeret „Speedy“ Peterson, sem vann til silfurverðlauna á vetrarólympíuleikunum í Vancouver á síðasta ári, fannst látinn í gær nærri Salt Lake City í Bandaríkjunum. Talið er að Peterson hafi framið sjálfsmorð en hann var 29 ára gamall. Talsmaður lögreglunnar í Salt Lake City segir að Peterson hafi sjálfur hringt í neyðarlínuna og hann hafi notað skotvopn til þess að taka líf sitt.
Peterson vann til siflurverðlauna á ÓL í Kanada í stökkæfingum í skíðafimi með frjálsri aðferð.
Peterson var tekinn fyrir hraða - ölvunarakstur í Idaho um s.l. helgi og var hann handtekinn í kjölfarið. Hann var látinn laus gegn tryggingu og atburðarásin eftir það endaði með sorglegum hætti.
Ólympíuverðlaunahafi framdi sjálfsmorð

Mest lesið


Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“
Íslenski boltinn

Barcelona Spánarmeistari
Fótbolti







Fleiri fréttir
