Sebastian Vettel á Red Bull varð 0.063 úr sekúndu á undan Fernando Alonso á Ferrari á lokaæfingu Formúlu 1 liða á Silverstone brautinni í morgun. Brautin var þurr, en keppendur æfðu í tvígang á blautri braut í gær og þá náði Mark Webber á Red Bull besta tíma á fyrri æfingunni, en Felipe Massa á Ferrari á þeirri síðari um daginn.
Nokkur rekistefna hefur verið á staðnum varðandi túlkun FIA á reglum varðandi uppstillingar á tölvustýringu véla og útblæstri frá þeim á loftdreifi aftan á bílunum, en frá og með mótinu á Silverstone á að taka öðruvísi á málinu en áður að hálfu FIA og keppnislið verða að aðlaga sig að því. Það breytir því ekki að Vettel er með besta tíma og hann hefur náð besta tíma í sjö tímatökum af átta á árinu, en tímatakan á Silverstone er á dagskrá í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.45 í dag.
Tímarnir af autosport.com
1. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m31.401s 17
2. Fernando Alonso Ferrari 1m31.464s + 0.063s 20
3. Mark Webber Red Bull-Renault 1m31.829s + 0.428s 12
4. Felipe Massa Ferrari 1m32.169s + 0.768s 20
5. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m32.496s + 1.095s 20
6. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m32.956s + 1.555s 18
7. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari 1m33.014s + 1.613s 20
8. Nico Rosberg Mercedes 1m33.044s + 1.643s 23
9. Sergio Perez Sauber-Ferrari 1m33.264s + 1.863s 21
10. Paul di Resta Force India-Mercedes 1m33.423s + 2.022s 22
11. Michael Schumacher Mercedes 1m33.551s + 2.150s 11
12. Adrian Sutil Force India-Mercedes 1m33.660s + 2.259s 22
13. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m33.842s + 2.441s 16
14. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m33.905s + 2.504s 21
15. Vitaly Petrov Renault 1m34.042s + 2.641s 22
16. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m34.329s + 2.928s 20
17. Sebastien Buemi Toro Rosso-Ferrari 1m34.799s + 3.398s 20
18. Nick Heidfeld Renault 1m34.822s + 3.421s 21
19. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m35.225s + 3.824s 21
20. Jarno Trulli Lotus-Renault 1m36.905s + 5.504s 21
21. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m37.614s + 6.213s 18
22. Jerome D'Ambrosio Virgin-Cosworth 1m38.068s + 6.667s 20
23. Daniel Ricciardo HRT-Cosworth 1m38.289s + 6.888s 19
24. Tonio Liuzzi HRT-Cosworth 1m38.568s + 7.167s 17
Vettel rétt á undan Alonso á lokaæfingunni

Mest lesið



Sjáðu mörkin úr endurkomu Vestra og þrumufleyg Hallgríms
Íslenski boltinn


Bastarður ráðinn til starfa
Fótbolti


Elsti leikmaðurinn til að fá MVP atkvæði
Körfubolti


Garnacho ekki í hóp
Enski boltinn

Ísak Bergmann hljóp mest allra
Fótbolti