Milljarða kröfur á hendur stjórnar Eik Banki og Deloitte 23. júní 2011 12:51
Stjórn hins færeyska Eik Banki og Deloitte endurskoðendur bankans horfa nú fram á a.m.k. eins milljarðs danskra kr. eða 22 milljarða kr. skaðabótakröfur í dómsmáli sem bankasýsla Danmerkur (Finansiel stabilitet) ætlar að höfða gegn þeim. Fjallað er um málið í flestum fjölmiðlum Danmerkur í morgun. Sem kunnugt er af fréttum varð Eik Banki gjaldþrota í lok síðasta árs og töpuðu hluthafar hans um 6 milljörðum danskra kr. eða yfir 700 milljörðum kr. Talið er að danska ríkið muni síðan tapa um 3 milljörðum danskra kr. á gjaldþrotinu. Bankasýsla Danmerkur fékk lögmanninn Carsten Fode til að vinna skýrslu um gjaldþrot Eik Banki og aðdraganda þess. Í skýrslunni kemur fram hörð gagnrýni á stjórn bankans og endurskoðendur hans og þar segir m.a. að við hálfs árs uppgjör bankans árið 2009 hafi verið ljóst að staðan var kolsvört og bankinn í raun ekki greiðslufær. Með að því að halda áfram óbreyttum rekstri frá þeim tíma hafi stjórn, stjórnendur og endurskoðendur bankans skapað sér ábyrgð á tapi bankans. Á grundvelli skýrslu Carsten Fode hefur Bankasýslan ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur níu einstaklingum sem mynduðu stjórn bankans og voru endurskoðendur hans á tímabilinu frá miðju ári 2009 og fram til þess að Eik Banki var lýstur gjaldþrota í október í fyrra. Talsmenn Deloitte hafa tjáð sig um málið og segja að misskilnings gæti hjá Carsten Fode um þátt þeirra í málinu.
Mest lesið Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira