Sigurganga Skagamanna heldur áfram - Selfyssingar á skriði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júní 2011 22:49 Mynd/Haraldur
Skagamenn eru áfram með sex stiga forskot í 1. deild karla eftir 1-0 sigur á Haukum á Ásvöllum í kvöld. Selfoss er í 2. sætinu eftir 3-0 sigur á KA og BÍ/Bolungarvík komst upp í 3. sætið eftir 2-1 sigur á botnliði HK. Arnar Már Guðjónsson tryggði ÍA 1-0 sigur á Haukum með marki út vítaspyrnu strax á 14. mínútu en þetta var sjötti sigur Skagamanna í sjö leikjum. Þetta er í annað sinn í sumar sem Arnar tryggði ÍA sigur af vítapunktinum. Selfyssingar unnu sinn þriðja leik í röð þegar þeir skelltu KA-mönnum 3-0 á Selfossi. Andri Freyr Björnsson skoraði tvö mörk í leiknum og Viðar Örn Kjartansson innsiglaði síðan sigurinn en Selfossliðið hefur skorað þrjú mörk eða meira í þessum þremur sigurleikjum. Matthías Króknes Jóhannsson tryggði BÍ/Bolungarvík 1-0 sigur á HK fyrir vestan en Hólmbert Aron Friðjónsson kom HK í 1-0 eftir átta mínútna leik og þannig var staðan í 52 mínútur. Tomi Ameobi jafnaði leikinn á 60. mínútu og Matthías skoraði sigurmarkið fimm mínútum síðar. Kristján Finnbogason hélt marki Gróttu hreinu í þriðja sinn í síðustu fjórum leikjum þegar Fjölnir og Grótta gerðu markalaust jafntefli í Grafarvoginum. Grótta hefur náð í átta stig í þessum fjórum leikjum. Úrslit og markaskorar í 1. deild karla í kvöld:Haukar-ÍA 0-1 0-1 Arnar Már Guðjónsson, víti (14.)Fjölnir-Grótta 0-0BÍ/Bolungarvík-HK 2-1 0-1 Hólmbert Aron Friðjónsson (8.), 1-1 Tomi Ameobi (60.), 2-1 Matthías Króknes Jóhannsson (67.)Selfoss-KA 3-0 1-0 Andri Freyr Björnsson (45.), 2-0 Andri Freyr Björnsson (46.), 3-0 Viðar Örn Kjartansson (65.) Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af fótbolti.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Fleiri fréttir Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Bjarni Jó hættur Sjá meira