Nico Rosberg og Michael Schumacher mæta á Sjanghæ Formúlu 1 brautina í Kína um helgina og keppa í þriðja Formúlu 1 móti ársins. Rosberg varð í þriðja sæti í mótinu í Sjanghæ í fyrra.
„Brautin í Sjanghæ er skemmtilegt viðfangsefni og ég á góðar minningar frá því í mótinu í fyrra, þar sem ég var í þriðja sæti á verðlaunapallinum", sagði Rosberg um mótið á sunnudaginn í fréttatilkynningu frá Mercedes.
„Byrjunin á tímabilinu í ár hefur verið erfið, en ég hlakka til að snúa gangi mála okkur í hag um helgina. Ég kann vel við að aka brautina og hefur verið fljótur á henni. Við hefðum getað náð ofar í tímatökum í Malasíu, þannig að ég veit að það býr meira í bílnum, þegar allt virkar sem skyldi. Við vinnum hörðum höndum að því að láta það gerast."
Schumacher varð aðeins ellefti á ráslínu í Malasíu og hefur ekki gengið vel í tímatökum á árinu og hefur ekki komist í stigasæti í keppni, né heldur Rosberg.
„Ég hlakka til mótsins í Sjanghæ og verkefnisins. Við höfum smá tíma til undirbúnings eftir mótið um síðustu helgi. Við erum að læra og mætum með opnum hug til leiks í næsta mót. Erum með metnað til að gera betur en í fyrstu mótunum. Aðdáendur okkar í Kína eru áhugasamir og veita stuðning og við munum gera okkar besta til að sýna okkar besta", sagði Schumacher.
