Markvarðarþjálfari Man. United var að skoða Neuer um helgina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2011 14:15 Manuel Neuer. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Það bendir margt til þess að Manchester United ætli að reyna að fá þýska landsliðsmarkvörðinn Manuel Neuer til þess að taka við stöðu hollenska markvarðarins Edwin van der Sar þegar hann leggur skóna á hilluna í vor. Eric Steele, markvarðarþjálfari Manchester United, var í Þýskalandi um helgina þar sem hann fylgdist með Manuel Neuer spila með liði sínu Schalke á móti Bayer Leverkusen. Neuer sem er 24 ára gamall, sló í gegn á HM í Suður-Afríku síðasta sumar þegar hann kom óvænt inn í byrjunarlið þýska landsliðsins eftir að René Adler meiddist og Robert Enke framdi sjálfsmorð. René Adler, markvörður Bayer Leverkusen og Maarten Stekelenburg, markvörður Ajax koma báðir líka til greina en eitt er víst að Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, mun kaupa nýjan markvörð á Old Trafford næsta sumar. Manuel Neuer hefur fengið á sig 33 mörk og haldið níu sinnum hreinu í 27 leikjum í þýsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Í Meistaradeildinni hefur hann fengið á sig 5 mörk í átta leikjum og haldið marki sínu þrisvar sinnum hreinu.
Meistaradeild Evrópu Þýski boltinn Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Fleiri fréttir Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Sjá meira