Kristinn: Mættum til leiks í síðari hálfleik Stefán Árni Pálsson í Digranesinu skrifar 28. mars 2011 21:28 Kristinn Guðmundsson. „
Þetta var virkilega súrsætur leikur, en við mættum ekki til leiks fyrir en í hálfleik," sagði Kristinn Guðmundsson, annar þjálfari HK, eftir tapið í kvöld. HK-ingar töpuðu, 32-29, fyrir Akureyri eftir að hafa verið 10 mörkum undir í hálfleik. Leikurinn var hluti af 19.umferð N1-deilda karla og fór fram í Digranesinu. „Í fyrri hálfleik voru við okkur til háborinnar skammar. Við fórum út í síðari hálfleikinn með það að leiðarljósi að laga stöðuna aðeins og komast eins og menn frá leiknum," sagði Kristinn. „Strákarnir komu virkilega sannfærandi til baka og við getum í raun verið svekktir með það að hafa ekki hreinlega hrifsað sigurinn úr höndunum á Akureyri." „Um leið og ég er virkilega stoltur af strákunum hvernig þeir komu út í síðari hálfleikinn þá er ég hrikalega óánægður með hvernig við mættum til leiks. Ég hef engar áhyggjur af liðinu ef við spilum eins og síðustu 25 mínútur leiksins, en menn verða að vera rétt innstilltir þegar þeir mæta til leiks," sagði Kristinn. „Undir lokin þá leituðu leikmenn mínir mikið inn á línu sem er oft merki um það að menn þora ekki að taka sjálfir á skarið, en það varð okkur kannski að falli. Sveinbjörn Pétursson hefur verið algjör martröð fyrir okkur í vetur og við hreinlega ráðum ekki við hann, en við fórum að skjóta almennilega á hann í síðari hálfleik," sagði Kristinn. HK er í fjórða sæti deildarinnar með 20 stig, en þeir mæta sjóðheitu liði Fram í næstu umferð og það er leikur upp á líf og dauða. „Það eru enn tveir leikir eftir að tímabilinu og þetta er í okkar höndum, en við verðum að spila betur en í kvöld," sagði Kristinn nokkuð bjartsýnn á framhaldið.
Olís-deild karla Mest lesið Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Golf Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Enski boltinn Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Enski boltinn Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic Körfubolti City missti tvisvar niður forystu gegn Forest Enski boltinn Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Enski boltinn Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Enski boltinn Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum Enski boltinn „Það var í raun ekkert merkilegt, ég var ekkert að æsa mig“ Sport Dagskráin í dag: Spurs í fallbaráttunni og Messan Sport Fleiri fréttir Færeyingar unnu sterkan varnarsigur gegn Portúgal „Ógeðslega gaman og ég er ógeðslega ánægð með allar“ „Að vera í þessum íþróttum er stanslaus þjáning“ Engin bikarþynnka hjá Haukum „Það var engin hætta“ Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu Norðmenn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum „Mér finnst við eiga mikið inni“ Átta ára hark á enda „Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Myndasyrpa: Haukar fögnuðu á heimavelli „Þetta er súrrealísk tilfinning“ „Fyrst og fremst stoltur af leikmönnum liðsins“ „Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“ Elliði markahæstur í frábærum sigri Uppgjörið: Haukar - ÍR 28-21 | Haukar of stór biti fyrir ÍR Flautumark tryggði Íslendingaliðinu sigur „Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“ „Algjör rússibani“ Sjá meira