Lán sem Landsvirkjun gætið fengið frá Norræna fjárfestingarbankanum til að fjármagna Búðarhálsvirkjun er háð því skilyrði að önnur fjármögnun takist. Í raun gæti fyrirvarinn þýtt að lánið fáist ekki nema Icesave-deilan leysist.
Landsvirkjun og Norræni fjárfestingabankinn undirrituðu í gær lánasamning til sextán ára upp á 70 milljónir bandaríkjadollara, eða sem svarar 8,6 milljörðum króna. Láninu er ætlað að fjármagna Búðarhálsvirkjun og nemur lánsfjárhæðin um þriðjungi þeirra 26 milljarða króna sem virkjunin mun kosta, en áformað er að hún verði öll fjármögnuð með lántöku. Þetta er ekki aðeins fyrsta lánið til virkjunarinnar heldur jafnframt fyrsta lánið sem Norræni fjárfestingarbankinn veitir til íslensks fyrirtækis frá bankahruninu í október 2008.
Lánið er þó skilyrt, og staðfestir Ragna Sara Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, að lánveitingin sé háð því að fjármögnun Búðarhálsvirkjunar takist að öðru leyti. Í því sambandi skal rifjað upp að Evrópski fjárfestingarbankinn hefur allt frá því í fyrravor neitað að afgreiða lán til Landsvirkjunar vegna Búðarháls með þeim óformlegu skilaboðum að stjórn bankans vilji fyrst sjá fram á lausn Icesave-deilu Íslendinga við Breta og Hollendinga.
Þegar Ragna Sara er spurð hvort þetta þýði í raun að lánið frá Norræna fjárfestingarbankum sé háð lausn Icesave-deilunnar, svarar hún að svo þurfi ekki endilega að vera. Aðrir möguleikar á lánum séu til skoðunar og Landsvirkjun sé bjartsýn á að fjármögnun takist á næstunni.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fór varlega í að fagna á Alþingi í morgun:
"Það er ánægjulegt að þetta sé í höfn. En það er ekki þar með sagt að hér sé búið að losa um það að við fáum bara greiðlega inn lánafyrirgreiðslur erlendis frá. Ég hygg að við þurfum að klára Icesave-málið til að það sé með þeim hætti að það sé viðunandi," sagði Jóhanna.
Lán í Búðarháls skilyrt - Icesave hangir á spýtunni

Mest lesið

„Ég held að þú þurfir ný gleraugu“
Viðskipti innlent

Ráðuneytið ógilti lóðaúthlutun fyrir milljarða
Viðskipti innlent

Vaxtalækkunarferlið heldur áfram
Viðskipti innlent

„Sporttöppum“ aftur komið fyrir
Neytendur

Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun sína um lækkun vaxta
Viðskipti innlent

Aka um Ísland í allt sumar og mynda vegakerfið í þrívídd
Viðskipti innlent

Jakob Valgeir lét Guðbjart bróður sinn fara
Viðskipti innlent

Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag
Viðskipti innlent

Úthluta eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka
Viðskipti innlent

Ráðinn markaðsstjóri Bónuss
Viðskipti innlent