Piquet feðgar fá uppreisn æru eftir meiðyrðarmál 8. desember 2010 16:49 Fernando Alonso, Flavio Briatore og Nelson Piquet störfuðu hjá Renault á sínum tíma. Mynd: Getty Images/Mark Thompson
Formúlu 1 lið Renault hefur samþykkt að greiða fyrrum liðsmanni þess, Nelson Piquet og föður hans skaðabætur vegna ummæla liðsins í kringum hneykslismál, sem kom upp eftir að yfirmenn liðsins voru sakaðir og dæmdir fyrir að hafa áhrif á úrslit í móti í Singapúr árið 2008. Autosport.com greindi frá þessu máli. Tveir yfirmenn liðsins, Flavio Briatore og Pat Symonds voru taldir hafa haft áhrif á Piquet þannnig að hann klessti bíl sínum á vegg, svo að möguleikar Fernando Alonso hjá Renault yrðu meiri í mótinu. Alonso vann keppnina eftir að öryggisbíllinn kom út og breytti gangi mála í mótinu. Árið eftir skoðað FIA málið eftir að Piquet yngri hafði vitnað um það hjá FIA að honum hefði verið gert að keyra á vegg. Piquet lét þetta í ljós eftir að hafa verið sagt upp störfum hjá Renault. Renault liðið var sakað um samsæri af hálfu FIA eftir vitnisburð Piquets. Renault liðið sendi frá sér tilkynningu um að Piquet feðgarnir hefðu logið til um atburði helgarinnar Singapúr og hefðu reynt að kúga fé út úr yfirmönnum liðsins. Feðgarnir voru æfir yfir ummælunum sem birtust í fréttatilkynningu frá Renault liðinu og á vef liðsins 11. september 2009. En 16. september tilkynnti Renault að Briatore og Symonds væru hættir störfum hjá liðinu, en FIA tók samsærismálið fyrir 21. september. Þeir Briatore og Symonds fengu dæmt á sig langt bann frá frá Formúlu 1, frá FIA, sem síðar var afétt. Piquet feðgarnir fóru hins vegar með ummæli Renault liðsins fyrir rétt og Renault hefur nú viðurkennt að ummælin voru röng. Renault bað feðganna formlega afsökunar á málinu samkvæmt frétt á autosport.com í gær og þeim voru greiddar umtalsverðar bætur samkvæmt tilkynningu frá Renault. Dominic Crossley lögfræðingur Piquet feðganna sagði m.a. í yfirlýsingu að ekki hefði verið komið vel fram við Piquet feðganna og að framkoma manna við Piquet yngri hefði verið afleit á fáranlega stuttum ferli. Crossley sagði feðganna sátta við niðurstöðuna í málinu, en Piquet hefur ekki keppt í Formúli 1 síðan honum var sagt upp hjá Renault á sínum tíma.
Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Fyrr skal ég dauður liggja“ Enski boltinn „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ Körfubolti Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Fótbolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Íslenski boltinn „Ómetanlegar“ minningar Nelson feðga Sport Fleiri fréttir Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúlu 1 ungstirnið viðurkennir að hafa fallið á ökuprófinu Eiginkona Michael Schumacher í áfalli Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“ Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi Arftaki Hamiltons fékk bílprófið sex vikum fyrir fyrstu keppni tímabilsins Mun harðari refsingar á nýju formúlu 1 tímabili Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Sjá meira