„Þetta er mjög fallegur pakki,“ segir Ragnar Bragason, leikstjóri Nætur-, Dag- og Fangavaktarinnar.
Vaktabókin kemur út í dag. Viðhafnarútgáfa af kvikmyndinni Bjarnfreðarson fylgir bókinni sem inniheldur að sögn Ragnars alls kyns dót sem féll til við gerð myndarinnar og þáttanna.
„Það er ýmislegt sem hefur ekki komið fram; bréf, póstkort og alls konar hlutir sem við höfum unnið en hafa ekki birst í seríunum,“ segir Ragnar.

„Þessu var safnað saman í úrklippubók. Bókin er tvískipt. Helmingurinn er alls konar dót sem gefur okkur skemmtilega mynd af þessum persónum og þeirra lífshlaupi. Seinni hlutinn er handritið af Bjarnfreðarsyni í heild sinni.“
Frosti Gnarr, stjúpsonur Jóns Gnarr, hannaði bókina og tók efnið saman ásamt Ævari Grímssyni, einum af fimmmenningunum á bak við þættina og myndina.
En er ekki búið að mjólka það sem hægt er að mjólka úr Vöktunum?
„Jú, ég held það nú. Þetta er lokahnykkurinn. Okkur fannst þegar við fórum að skoða efnið sem strákarnir voru búnir að vinna að það þyrfti að koma út fyrir nördana. Þetta verður líka í takmörkuðu upplagi – ég held að það séu bara 3.000 eintök gerð.“ - afb