Sebastian Vettel var sáttur við að tímatökunni sem átti að vera á Suzuka brautinni í Japan í nótt var frestað vegna veðurs, en mikill vatnselgur var á brautinni. Hann var fljótastur á tveimur æfingum á föstudag og vann mótið á Suzuka í fyrra.
Keppnisstjórn sendi starfsmenn á öryggisbíl inn á brautina til að kanna aðstæður nokkrum sinnum og afréð síðan að fresta tímatökunni þar til í nótt.
Bein útsending frá tímatökunni verður kl. 00.45 á Stöð 2 Sport í nótt. Möguleiki er á rigningu á ný og það gæti gefið minni spámönnum við stýrið möguleika á að ná betri árangri en ella. Þetta gæti líka riðlað gangi máli í titilslagnum.
"Ég tel að stjórnendur mótsins hafi gert rétt í því að senda öryggisbílinn út á 20 mínútna fresti til að skoða aðstæður. Aðstæður skánuðu bara ekki", sagði Vettel í frétt á autosport.com.
"Ég tel að rétt ákvörðun hafi verið tekinn og ég veit að það er ekki auðvelt að taka svona ákvörðun, en við þessar aðstæður höfum við enga stjórn á bílunum", sagði Vettel og benti á það að bílarnir eru tiltölulega léttir, helmingi léttari en hefðbundinn götubíll og sást á lokaæfingu fyrir tímatökuna að bílarnir flutu upp á brautinni. Rigndi einnig á lokaæfingunni sem var líka frestað.
"Bílarnir eru líka lágir frá jörðu og þeir fljóta upp ef það er mikið vatn á brautinni. Það var ekki sjéns að keyra. Við hefðum bara verið eins og farþegar um borð, frekar en við stjórn og ekki getað tekið á bílunum", sagði Vettel.
Tímatakan fer fram í nótt og hefst bein útsending frá henni kl. 00.45 á Stöð 2 Sport. er Möguleiki á rigningu á ný og það gæti gefið minni spámönnum við stýrið möguleika á að ná betri árangri en ella.