Aron: Markverðirnir frábærir Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. apríl 2010 21:54 Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, í leiknum í kvöld. Mynd/Daníel
Aron Kristjánsson hrósaði markvörðum beggja liða eftir sigur Hauka á HK í undanúrslitum úrslitakeppni N1-deildar karla í kvöld, 22-20. Báðir áttu þeir stjörnuleik en Birkir Ívar var sérstaklega góður í marki Haukanna og varði til að mynda fimm vítaköst. „Þetta var mjög erfiður leikur," sagði Aron, þjálfari Hauka. „Enda undanúrslit á Íslandsmóti og því kom það ekki á óvart. HK er með gott lið og Sveinbjörn [Pétursson] var frábær í kvöld. Það var Birkir Ívar líka og það gerði útslagið hjá okkur." „Varnarleikurinn var líka góður en sóknarleikurinn okkar fannst mér stirðbusalegur. Leikkerfin gengu illa og við vorum einnig að skjóta illa á markið." „Við lentum undir í byrjun og mér fannst gríðarlegt óöryggi í sóknarleiknum framan af og menn virtust smeykir. Við náðum sem betur fer að hrista það af okkur og koma okkur betur inn í leikinn." „Þessir leikir eru þannig að menn þurfa að gefa allt sem þeir eiga og halda einbeitingunni frá upphafi til enda. Það er eina leiðin til að vinna þessa leiki." Það kom honum nokkuð á óvart hversu lítið það var skorað í leiknum í kvöld. „Oftast þegar þessi lið mætast er meira skorað. Ég á því von á að það verði meira opnað fyrir það í næsta leik og ég á von á afar erfiðum leik í Kópavogi."
Olís-deild karla Mest lesið Glódísar-æði hefur gripið um sig: „Ég kom til að horfa á Glódísi“ Fótbolti Skip Bayless kærður fyrir kynferðislega áreitni Sport „Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“ Handbolti Gerrard að verða afi Fótbolti Fékk að halda áfram að spila þrátt fyrir að hafa fengið rautt Fótbolti Vill fá útlending eða Rúnar Kristins sem næsta landsliðsþjálfara Fótbolti Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd Enski boltinn Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Enski boltinn Broncos slátraði meisturunum og komst áfram Sport Anna Kamilla fyrsta snjóbrettakonan frá upphafi Sport Fleiri fréttir „Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“ ÍR byrjar nýja árið með besta hætti Alfreð Gísla: „Hljómar kannski hrokafullt en svona er þetta“ Mun aldrei hitta neinn sem byggir upp lið eins og Þórir Tognun í rassi en Elvar telur HM ekki í hættu Díana Dögg öflug í sigri Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 29-32 | Hafnfirðingar byrja árið af krafti Nýtt ár en áfram vinna Valskonur „Þetta eru gríðarlegar framfarir“ „Við eigum okkur allir drauma“ Sagt að deyja eftir að Ísland komst ekki í undanúrslit Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ „Svakalega leiðinlegt fyrir bæði hann og okkur“ „Eiginlega bara þið sem hafið pumpað þetta upp“ Elvar og Aron taka ekki fullan þátt Sigurjón fær að læra af titlaóðum Palicka Tvöfalt sjokk fyrir Alfreð Ballið byrjar hjá strákunum okkar Alfreð setur Þýskaland og Ísland í sama flokk fyrir HM Strákarnir þurftu að sætta sig við silfur annað árið í röð Misjafnt gengi Íslendingaliðanna í Þýskalandi Sigvaldi markahæstur er Kolstad varð bikarmeistari Strákarnir komnir í úrslit Hafsteinn fer á HM Íslensku strákarnir komnir í undanúrslit Elín og Ómar valin handknattleiksfólk ársins Töp hjá Íslendingaliðunum í Þýskalandi Melsungen enn á toppnum eftir sigur í Íslendingaslag Ólafi tvisvar vikið af velli og ekkert skorað síðustu tvær mínúturnar Viggó færir sig um set á nýju ári Sjá meira