Liverpool slapp með markalaust jafntefli á móti Utrecht Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. september 2010 18:49 Pepe Reina var ekki sáttur með leik sinna manna í kvöld. Mynd/AP
Liverpool gat þakkað fyrir að sleppa með markalaust jafntefli á móti hollenska liðinu Utrecht í Evrópudeildinni í kvöld. Leikurinn fór fram í Hollandi og voru heimamenn klaufar að skora ekki á móti slöku liði Liverpool. Pepe Reina og varnarmenn Liverpool höfðu í mörgu að snúast í leiknum sérstaklega í seinni hálfleik þar sem hollenska liðið náði nokkrum góðum sóknum og hefði vel getað tryggt sér sigur. Fernando Torres fékk tvö bestu færi Liverpool, það á meðal frábært færi um miðja síðari hálfleik eftir góðan undirbúning hjá Dirk Kuyt. Torres lét Michel Vorm, markvörð Utrecht, verja frá sér af markteignum. Liverpool er samt áfram á toppi síns riðils þökk sé 4-1 sigri á Steaua Búkarest í fyrstu umferð en Liverpool er með tveggja stiga forskot á Napoli og Utrecht sem er í 3. sæti eftir tvö markalaus jafntefli. Steaua og Napoli gerðu 3-3 jafntefli í hinum leik riðilsins þar sem rúmenska liðið var komið í 3-0 eftir aðeins sextán mínútna leik en Ítalirnir jöfnuðu á áttundu mínútu í uppbótartíma.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira