Flytja þarf mörg þúsund fjár af öskusvæðum 18. maí 2010 05:00 Öskufall Öskufallið hefur valdið bændum undir Austur- Eyjafjöllum ómældum skaða.
Fyrstu kindurnar verða fluttar af öskufallssvæðunum undir Austur-Eyjafjöllum á beitarsvæði innan varnarlínu í dag. Að sögn Hermanns Árnasonar, starfsmanns hjá Búnaðarsambandi Suðurlands, verða á annað hundrað lambær fluttar á jörðina Þverá í Skaftárhreppi. „Sauðfjárbændur ætla að reyna að þrauka eins lengi og þeir geta,“ segir Hermann. „Óvissan er hins vegar mjög mikil. Þó er ljóst að á svæðunum undir Eyjafjöllum sem verst hafa orðið úti af völdum öskufallsins er fátt annað í stöðunni en að flytja féð. Það er búið með haglendið þar í sumar. Það er því alveg ljóst að það mun koma til frekari fjárflutninga, þótt einhverjir treysti sér til að hafa féð í heimahögum. Spurningin er bara hversu mörg þúsund þarf að flytja. Hins vegar fjara möguleikar manna til að hafa féð heima við út með hverri öskugusunni sem ríður yfir svæðið, þannig að það er nær útilokað að spá um framhaldið. Þetta er svo fljótt að gerast. Fljótt á litið tel ég að fjöldi fullorðins fjár á öskfallssvæðunum sé 6 - 7000.“ Hermann segir æ fleiri bjóða fram land til beitar innan varnarlínu. Framboðið sé orðið meira en hann hafi átt von á. Hjálpsemi fólks sé alveg ótrúleg þegar á reyni. - jss
Fréttir Innlent Mest lesið Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Innlent Fleiri fréttir Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Sjá meira