Barist um sætin inn í úrslitakeppnina í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2010 16:30 Það verður hart barist í kvöld og KR-ingurinn Helga Einarsdóttir og Hamarskonan Hafrún Hálfdánardóttir gefa örugglega ekkert eftir í sínum leikjum. Mynd/Stefán
Það verður mikil spenna í lokaumferð Iceland Express deildar kvenna í körfubolta í kvöld þegar það ræðst hvaða lið komast í úrslitakeppnina, hvaða lið situr hjá í fyrstu umferð ásamt deildarmeisturum KR og hvaða lið mætast í sex liða úrslitunum sem hefjast um næstu helgi. KR og Haukar eru einu liðin sem eru með örugg sæti í úrslitakeppninni því KR hefur unnið deildarmeistaratitilinn og bikarmeistarar Hauka hafa þegar tryggt sér sigur í b-deildinni. Keflavík og Hamar berjast um annað sætið í A-deildinni og þar með öruggt sæti í undanúrslitunum en tvö efstu lið deildarinnar sitja hjá í sex liða úrslitunum. Liðin mætast í þessum hreina úrslitaleik í Keflavík í kvöld og þar má Keflavík tapa með fjórum stigum án þess að missa annað sætið til Hamars. Vinni Hamar Keflavík með fimm stigum eða meira þá endar Hamar í öðru sætinu. Grindavík er sem stendur í 4. sæti en á enn möguleika á þriðja sætinu vinni liðið deildarmeistara KR á heimavelli á sama tíma og Hamar vinnur með sjö stigum eða meira. Fari svo endar Grindavík í 3. sætinu og sendir Keflavík niður í fjórða sætið en Grindavík verður annars í 4. sætinu hvernig sem fer í öðrum leikjum. Í b-deildinni er enn mikil barátta um hvaða lið fylgir Haukum inn í úrslitakeppnina. Njarðvík og Snæfell eiga bæði möguleika á öðru sætinu og þar með sæti í úrslitakeppninni. Ef Njarðvík vinnur Hauka á heimavelli í kvöld þá verða þær í öðru sætinu en tapi þær hinsvegar og Snæfell vinnur Val á útivelli þá kemst Snæfell inn í úrslitakeppnina. Í sex liða úrslitum úrslitakeppninnar mætir liðið í 3. sæti A-deildar liðinu í 2. sæti b-deildar annarsvegar og hinsvegar mætir liðið í 4. sæti A-deildar liðinu í 1. sæti í b-deild sem er þegar ljóst að verður lið Hauka. Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15 en þeir eru: Keflavík-Hamar, Grindavík-KR, Njarðvík-Haukar og Valur-Snæfell.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira