Sigfús: Gamli maðurinn hefur engu gleymt Henry Birgir Gunnarsson skrifar 22. febrúar 2010 22:27 Sigfús er mættur aftur.
Valsmenn brostu í kvöld þegar silfurdrengurinn Sigfús Sigurðsson snéri aftur á handboltavöllinn eftir langa fjarveru. Fyrir um hálfu ári síðan var útlit fyrir að ferill Sigfúsar væri á enda. Hann átti ekki að spila í kvöld en var kastað inn á völlinn þegar allt var í steik hjá Valsmönnum. Þó svo Sigfús hafi ekki virkað í merkilegu formi stóð hann sig vel. Skoraði tvö góð mörk, stóð vaktina í vörnina vel og varði nokkur skot. „Ég ætlaði bara að sitja fyrir aftan bekkinn og veita stuðning en svo duttu menn bara út og ég varð að koma inn," sagði Sigfús sem hefur verið duglegur í ræktinni en aðeins mætt á fjórar handboltaæfingar. „Ég hélt þetta furðuvel út. Gamli maðurinn hefur engu gleymt. Það er seigt í „dieselnum" sagði Sigfús og glotti við tönn. „Ég er ekkert búinn á því en aðallega fúll. Dómararnir gáfu þeim þetta undir lokin. Ég var búinn að ná boltanum, þeir brjóta á mér og fá svo boltann og víti. Svona er þetta, þeir sjá ekki allt þessir blessuðu dómarar," sagði Sigfús sem ætlar að reyna að vera með Valsmönnum út leiktíðina. „Þetta er svo gaman að maður verður að reyna að vera með."
Olís-deild karla Mest lesið Ronaldo verður ekki með á HM félagsliða Fótbolti Áhyggjufullir eftir tap gegn „algjöru meðalliði“ Íslands Fótbolti Annar risatitillinn kom gegn efstu konu heimslistans Sport Segir að Postecoglou sé „goðsögn“ í sögu félagsins Sport Uppgjörið: Þróttur - Þór/KA 2-0 | Þróttur með þriggja stiga forskot á toppnum Fótbolti Gunnlaugur í sigurliði á sterkasta áhugamannamóti heims Golf Uppgjörið: Víkingur-FH 1-4 | Eintóm hamingja hjá FH-konum í Víkinni Íslenski boltinn Segir að eitrað hafi verið fyrir leikmönnum liðsins Fótbolti Uppgjör: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar sannfærandi Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik-FHL 6-0 | Sex Blikakonur á skotskónum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Orri og félagar bikarmeistarar Arnór Atla valinn þjálfari ársins Strákarnir hans Arnórs fara í oddaleik um bronsið KA ræður manninn sem gerði KA/Þór að Íslandsmeisturum Silfrið niðurstaðan fyrir Hannes og strákana hans Óðinn með næstflottasta markið í Evrópudeildinni Elín Klara og Reynir Þór valin best Guðjóni Val tókst ekki að hjálpa löndum sínum Dæmdur 10-0 sigur og titillinn í höfn eftir mikið hneyksli Gísli Þorgeir sleppur við aðgerð Dagur Árni fetar í fótspor pabba síns Lýst sem ungum Elvari: Reynir til eins besta liðs Þýskalands Gerir ekki ráð fyrir miklum breytingum á leikmannahópnum Hlaðvarpsstjörnu dreymir um að spila handbolta á Ólympíuleikunum 2028 Viktor Gísli pólskur meistari í kvöld Magdeburg upp í toppsætið en Melsungen missteig sig Janus Daði og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Spilar með tilfinningum sínum: „Næst kýlir maður með vinstri“ Jóhanna Margrét snýr heim og fer í Hauka Þrír fyrrum dómarar hlutu heiðursmerki Viggó kom Erlangen úr fallsæti Íslendingalið Melsungen heldur í við toppliðin Gísli Þorgeir meiddist enn á ný á öxl Elliði Snær og Teitur Örn höfðu betur gegn Andra Má Stórleikur Janusar og fimm marka forskot ekki nóg í Íslendingaslag um titilinn Hannes og lærisveinar hans töpuðu fyrsta úrslitaleiknum Samstarf HSÍ og Rapyd heyrir sögunni til Melsungen tapaði toppslagnum Magdeburg á toppinn eftir enn einn stórleikinn hjá Ómari og Gísla „Er þreyttur núna, ég skal bara viðurkenna það“ Sjá meira