Íslenska kvennalandsliðið lék í dag síðasta leik sinn í riðlakeppni Algarve-bikarsins. Leikið var gegn Noregi og tapaði Ísland 2-3.
Ísland hefur því tapað öllum leikjum sínum í mótinu leikur um 7. eða 9. sætið á miðvikudaginn.
Noregur komst yfir í leiknum en Margrét Lára Viðarsdóttir jafnaði. Norska liðið komst svo í 3-1 áður en Hólmfríður Magnúsdóttir minnkaði muninn með marki beint úr hornspyrnu. Lengra komust íslensku stelpurnar ekki.