Óskar Bjarni: Leiðinlegt að vera að fara í frí Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2010 22:12 Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, í kvöld. Mynd/Anton
Valsmenn hafa unnið alla fjóra leiki sína síðan að Óskar Bjarni Óskarsson og Heimir Ríkarðsson tóku við liðinu. Valsmenn unnu dramatískan 29-28 sigur á Fram í kvöld. „Þetta var frábært en það var kannski ekki alveg sanngjarnt að vinna því jafntefli hefði verið sanngjarnast miðað við það að við vorum að elta svo mikið. Það var samt frábært að vinna þetta, við erum á frábæru skriði og það er leiðinlegt að fara í frí," sagði Óskar Bjarni kátur í leikslok. „Það var allt að koma þegar ég kom inn og ég hef sagt það áður. Það var allt að smella meira sóknarlega og Bubbi (Hlynur Morthens) var kominn inn. Þetta er farið að rúlla strákarnir tóku sig vel saman í andlitinu og hafa gert það nokkrum sinnum í vetur því þetta er búið að vera mjög erfitt. Nú er bara að horfa fram á veginn og vera ekkert að kíkja til baka. Við eigum enn tvo menn inni í meiðslum og erum bara bjartsýnir," sagði Óskar Bjarni en hvað hefur breyst? „Vörnin kom með tilkomu Fannars því þá kom meiri þéttleiki og svo kom extra markvarsla með tilkomu Bubba. Við höfum síðan slípast meira sóknarlega um leið og Ernir kemur meira inn í þetta," sagði Óskar Bjarni og var síðan rokinn í sigurmyndatöku af Valsmönnum sem geta glaðst yfir þessum sigri yfir öll jólin.
Olís-deild karla Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira