Haukarnir eru einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum eftir 28-25 sigur á Val í þriðja úrslitaleik liðanna í N1 deild karla á Ásvöllum í dag. Haukar eru komnir í 2-1 og geta tryggt sér titilinn í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda á þriðjudagskvöldið.
Haukarnir náðu upp góðu forskoti með frábærum lokakafla á fyrri hálfleik þar sem þeir breyttu stöðunni úr 9-7 í 15-8 á aðeins sjö mínútum.
Haukarnir byrjuðu seinni hálfleik af miklum krafti, skoruðu þrjú fyrstu mörk hans og komust í 19-11. Eftir þetta var aldrei spurning um hvernig leikurinn myndi fara þótt að Valsmenn hafi aðeins lagað stöðuna eftir það.
Haukavörnin var mjög sterk og Birkir Ívar Guðmundsson varði síðan vel í markinu. Haukarnir voru líka duglegir að refsa Valsmönnum fyrir fjölda mörg mistök þeirra með mörkum úr hraðaupphlaupum.
Haukar-Valur 28-25 (16-11)
Mörk Hauka: Kári Kristjánsson 7, Elías Már Halldórsson 6, Andri Stefan 5, Sigurbergur Sveinsson 4, Einar Örn Jónsson 3, Gunnar Berg Viktorsson 2, Arnar Pétursson 1.
Mörk Vals: Ingvar Árnason 8, Elvar Friðriksson 7, Hjalti Þór Pálmason 4, Hjalti Gylfason 2, Davíð Ólafsson 2, Arnór Þór Gunnarsson 1, Gunnar Harðarson 1.
Haukar-Valur - gangur leiksins
0-1 Ingvar Árnason, lína (Elvar gaf línusendinguna)
0-2 Hjalti Þór Pálmason, langskot
1-2 Einar Örn Jónsson, hægra horn
1-3 Arnór Þór Gunnarsson, langskot
2-3 Kári Kristjánsson, lína (Sigurbergur)
3-3 Einar Örn Jónsson, hægra horn
4-3 Kári Kristjánsson, lína (Sigurbergur)
5-3 Sigurbergur Sveinsson, langskot
5-4 Elvar Friðriksson, gegnumbrot
5-5 Davíð Ólafsson, hraðaupphlaup
6-5 Andri Stefan, gegnumbrot
6-6 Hjalti Þór Pálmason, gegnumbrot
6-7 Elvar Friðriksson, víti (Orri Freyr)
7-7 Elías Már Halldórsson, hraðaupphlaup
8-7 Kári Kristjánsson, lína (Andri)
9-7 Elías Már Halldórsson, hraðaupphlaup
10-7 Einar Örn Jónsson, hraðaupphlaup
10-8 Elvar Friðriksson, langskot
11-8 Andri Stefan, langskot
12-8 Kári Kristjánsson, lína (Sigurbergur)
13-8 Kári Kristjánsson, langskot í hraðaupphlaupi
14-8 Arnar Pétursson, langskot
- Elvar Friðriksson, Val, skýtur í slá úr víti
15-8 Gunnar Berg Viktorsson, langskot
15-9 Hjalti Þór Pálmason, gegnumbrot
15-10 Ingvar Árnason, lína (Elvar)
16-10 Gunnar Berg Viktorsson, víti (Sigurbergur fiskaði vítið)
16-11 Ingvar Árnason, lína (Elvar)
-Hálfleikur-
17-11 Andri Stefan, langskot
18-11 Sigurbergur Sveinsson, gegnumbrot með vinstri
19-11 Sigurbergur Sveinsson, langskot
19-12 Ingvar Árnason, lína (Hjalti)
19-13 Ingvar Árnason, hraðaupphlaup
- Birkir Ívar Guðmundsson, Haukum, ver víti frá Heimi Erni Árnasyni
20-13 Elías Már Halldórsson, hraðaupphlaup
21-13 Elías Már Halldórsson, hraðaupphlaup
21-14 Elvar Friðriksson, gegnumbrot í hraðaupphlaupi
21-15 Elvar Friðriksson, gegnumbrot
22-15 Sigurbergur Sveinsson, gegnumbrot
22-16 Ingvar Árnason, lína (Elvar)
23-16 Elías Már Halldórsson, hraðaupphlaup
23-17 Ingvar Árnason, lína (Elvar)
24-17 Kári Kristjánsson, lína (Sigurbergur)
24-18 Ingvar Árnason, gegnumbrot
25-18 Andri Stefan, vinstra horn
25-19 Hjalti Þór Pálmason, langskot
26-19 Kári Kristjánsson, lína (Andri)
26-20 Hjalti Gylfason, langskot
27-20 Andri Stefan, lína (Elías Már)
- Birkir Ívar Guðmundsson, Haukum, ver víti frá Elvari Friðrikssyni
27-21 Gunnar Harðarson, lína í hraðaupphlaupi (Elvar)
27-22 Hjalti Gylfason, víti (Hjalti G.)
27-23 Elvar Friðriksson, langskot
Leikhlé Haukar 28:28
27-24 Davíð Ólafsson, , hraðaupphlaup
28-24 Elías Már Halldórsson, gegnumbrot
28-25 Elvar Friðriksson, langskot
Fyrri hálfleikur -
Haukar hafa fimm marka forskot í hálfleik á móti Val, 16-11, á þriðja úrslitaleik liðanna í N1 deild karla í handbolta. Staðan í einvíginu er 1-1 og það lið verður Íslandsmeistari sem fyrr vinnur þrjá leiki.
Valsmenn byrjuðu leikinn vel og komust í 3-1 en Haukarnir svöruðu þá með fjórum mörkum í röð og tóku frumkvæðið í leiknum. Valur komst aftur yfir í 6-7 en Haukarnir voru fljótir að breyta því og leiddur 9-7 þegar Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals tók leikhlé.
Leikhléið heppnaðist ekki vel hjá Óskar Bjarna því Haukarnir unnu síðustu 9 mínútur hálfleiks 7-4 og eru komnir í mjög góða stöðu í leiknum. Haukar voru reyndar komnir mest sjö mörkum yfir en Valsmenn náðu aðeins að laga stöðuna í lok hálfleiksins.
Kári Kristjánsson hefur skorað fimm mörk fyrir Hauka í fyrri hálfleik og Einar Örn Jónsson hefur skorað þrjú mörk. Hjá Val hafa þeir Hjalti Þór Pálmason, Ingvar Árnason og Elvar Friðriksson skorað þrjú mörk hver.
Birkir Ívar Guðmundsson hefur varið sjö skot í marki Hauka í fyrri hálfleik en markverðir Vals hafa samanlagt bara varið þrjú skot.
Haukar-Valur 16-11 - markaskor í fyrri hálfleik:
Mörk Hauka: Kári Kristjánsson 5, Einar Örn Jónsson 3, Andri Stefan 2, Elías Már Halldórsson 2, Gunnar Berg Viktorsson 2/1, Sigurbergur Sveinsson 1, Arnar Pétursson 1.
Mörk Vals: Hjalti Þór Pálmason 3, Ingvar Árnason 3, Elvar Friðriksson 3, Davíð Ólafsson 1, Arnór Þór Gunnarsson 1.