Aron: Áttu fá svör við þessari framliggjandi vörn hjá okkur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. maí 2009 23:00 Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka. Mynd/Stefán
Haukamenn unnu sannfærandi sigur á Val í þriðja leik úrslitaeinvígis liðanna um Íslandsmeistaratitilinn en leikurinn fór fram á Ásvöllum í dag. Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka var ánægður með sína menn. „Byrjunin var jöfn og það var mikil barátta. Við komumst síðan á góða siglingu í lok fyrri hálfleiks. Við náðum þá virkilega sterkri vörn og góðum hraðaupphlaupum. Við náðum líka sóknarleiknum í gang og fórum að spila þá hluti sem við viljum spila," sagði Aron en Haukar voru 16-11 yfir í hálfleik. „Við höldum áfram þar sem frá var horfið í byrjun seinni hálfleiks og sóknarleikurinn var fínn. Þegar við vorum komnir með sjö marka forskot í restina þá ætlaði ég að leyfa ungu strákunum að fá smjörþefinn af þessu og leyfa Gísla að komast inn í einvígið. Svo voru það reynsluboltarnir sem voru að kasta boltanum frá sér," sagði Aron í léttum tón. „Við hleyptum þarna smá lífi í leikinn aftur en þetta var aldrei í hættu," sagði Aron en Haukar náðu mest átta marka forskoti í seinni hálfleiknum. „Við vorum að spila mjög flotta vörn og þeir áttu fá svör við þessari framliggjandi vörn hjá okkur. Við héldum þeim verulega vel niðri og þeir þurftu hvað eftir annað að skjóta illa undirbúnir," sagði Aron. Haukarnir geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í fjórða leiknum sem fram fer á Hlíðarenda á þriðjudagskvöldið. „Við erum staðráðnir í að fara í Vodafone-höllina og vinna þar. Við tökum einn leik fyrir einu og það er alltaf markmiðið að vinna næsta leik," sagði Aron að lokum.
Olís-deild karla Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira