Handbolti

Valur og Grótta leika til úrslita í bikarnum

Valsmenn fögnuðu vel í leikslok
Valsmenn fögnuðu vel í leikslok

Það verða Valur og Grótta sem leika til úrslita í Eimskipsbikarnum í handbolta. Þetta varð ljóst í dag þegar Valsmenn unnu nokkuð öruggan sigur á FH-ingum í undanúrslitaleik 29-25.

Heimir Árnason og Arnór Gunnarsson skoruðu sjö mörk hvor fyrir Valsmenn í dag en Guðmundur Pedersen skoraði sex mörk fyrir FH.

Úrslitaleikur Vals og Gróttu fer fram í Laugardalshöll þann 28. febrúar nk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×