Fótbolti

Ronaldo tekur við af Beckham hjá Armani

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronaldo þykir vera fínn í tauinu.
Ronaldo þykir vera fínn í tauinu. Nordic Photos/AFP

Portúgalinn Cristiano Ronaldo hefur enn og aftur ákveðið að feta í fótsport David Beckham en hann verður nýtt andlit tískurisans Armani í stað Beckham sem hefur verið andlit fyrirtækisins síðustu ár.

Ronaldo mun auglýsa gallabuxur og skyrtur fyrir fyrirtækið ásamt því að vera opinber sendiherra fyrirtækisins. Ekki liggur enn fyrir hvort hann muni auglýsa nærbuxur á jafn áberandi hátt og Beckham gerði.

Beckham hefur verið hjá Armani síðan 2007 en hætti sjálfviljugur þar sem hann er að hanna sína eigin línu af nærfötum.

Félagi Ronaldo hjá Real Madrid, Kaká, hefur einnig verið að vinna fyrir Armani sem og David James og Andriy Shevchenko svo einhverjir séu nefndir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×