Fótbolti

Goran Pandev vill fara frá Lazio

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Goran Pendev í leik með Lazio.
Goran Pendev í leik með Lazio. Nordic Photos / AFP

Goran Pandev sagði í viðtali við ítalska fjölmiðla í dag að hann vildi fara frá Lazio sem allra fyrst.

Þetta ákvað hann eftir að Claudio Loitito, forseti Lazio, bauð honum ekki nýjan samning við félagið.

„Mínum tíma hjá félaginu er lokið. Ég vil takast á við nýjar áskoranir og finna mér nýtt lið," sagði Pandev.

Fjöldi liða eru sögð hafa áhuga á Pandev, svo sem Bayern München, Fiorentina og Juventus.

Pandev verður væntanlega í liði Makedóníu sem mætir Íslandi í undankeppni HM 2010 ytra á miðvikudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×