Jónatan: Við þurfum að fara í upptökupróf Hjalti Þór Hreinsson skrifar 10. desember 2009 21:37 Jónatan Magnússon, fyrirliði Akureyrar.
Fyrirliði Akureyrar segir tapið gegn Haukum í kvöld mikil vonbrigði. Akureyri tapaði með fjórum mörkum en liðið lék illa og sigur Hauka var aldrei í hættu. "Þetta eru vonbrigði fyrir okkur og alla þá sem mættu. Ég ætlaði bara ekki að trúa stöðunni og holningunni á liðinu þegar þetta byrjaði. Við vorum bara á hælunum frá byrjun fyrir framan fullt af fólki. Verkefnið var bara of stórt." „Við vorum því miður ekki með fullan fókus á leikinn. Við létum dómarana fara alltof mikið í taugarnar á okkur. Dómgæslan fannst mér hræðileg í leiknum, af því maður var svo pirraður. Núna þegar leikurinn er búinn var örugglega ekkert að henni. Við pirruðum okkur á hverjum einasta dómi og orkan sem átti að fara í að rífa sig upp af rassgatinu fór í pirring. Þetta var ein allsherjar krísa." „Þó að það sé reynsla í þessu liði lentum við í því að fara að gera alltof mikið sjálfir þegar illa gekk, við fórum að stytta sóknirnar í staðinn fyrir að lengja þær og við fórum að skjóta verr sem Birkir átti ekki í erfiðleikum með. „Þeir þrykktu okkur aftur niður á jörðina. Ég var búinn að segja það einhversstaðar að þetta yrði prófsteinn á liðið og við þurfum að fara í upptökupróf." „Munurinn á liðunum er sá að þeir höndla greinilega stærri leikina, þeir eru vanari þessu. Hjá okkur er greinilega of langt síðan menn voru undir einhverri pressu, það er ljótt að segja það. En vonandi höldum við áfram að vinna í deildinni til að fá fleiri svona leiki," sagði Jónatan.
Olís-deild karla Mest lesið Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Fótbolti Amad bjargaði stigi fyrir United Enski boltinn Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Handbolti Gjöf frá mömmu vatt rækilega upp á sig Sport Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Enski boltinn „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Handbolti Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Enski boltinn Liverpool féll síðast þegar liðið tapaði fimm í röð Enski boltinn Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Enski boltinn Andri Lucas í beinni í Doc Zone: „Við setjum hann í skeytin“ Enski boltinn Fleiri fréttir KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Valskonur unnu 24 marka sigur og ÍR upp í annað sætið „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Andri kallaður inn í hópinn fyrir meiddan Hauk Arnór Snær snýr aftur heim Besta handboltadeild heims missir aðalstyrktaraðila sinn Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ ÍR áfram eftir sigur í Mosfellsbæ Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 42-31 | Þrot í Þýskalandi Tilkynnti um óléttu og nýjan samning á sama tíma Patrekur hættur eftir dapurt gengi Stjörnunnar Rekinn fyrir ummæli sín um krabbameinssjúka handboltagoðsögn Janus Daði myndaður í heimsókn hjá Barcelona Epicbet sýni handboltann í leyfisleysi: „Enda ólöglegar síður“ Teitur inn í landsliðið Gísli bjó til meira en þriðjung markanna Haukur magnaður í sigri Löwen Blær skoraði þrjú og lagði upp jöfnunarmarkið KA/Þór sótti sigur gegn Fram og stigalausar Stjörnukonur Fram kjöldró HK og spenna í Eyjum Meistararnir unnu gegn ÍBV og ÍR hafði betur gegn Selfyssingum Donni og félagar björguðu stigi undir lokin Afturelding komst upp að hlið Hauka Seldu bleika búninginn hennar Herrem fyrir meira en milljón „Leið vel þegar ég fór inn úr færinu“ Uppgjörið FH - Haukar 27-26 | Birgir Már tryggði FH sigur eftir spennutrylli Bernard fór mikinn en Valsmenn sluppu með sigurinn Fyrsti sigur Þórsara síðan í byrjun september Ómar Ingi með fullkomnan leik í Meistaradeildinni Sjá meira