Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Ármanni vann sjöþraut í flokki 18-19 ára á Norðurlandameistaramóti unglinga á Kópavogsvelli í dag og setti um leið glæsilegt Íslandsmet.
Helga Margrét bætti eigið Íslandsmet um 197 stig en hún fékk 5721 stig að þessu sinni en gamla metið sem hún setti í Tékklandi fyrir um ári síðan var 5524 stig.
Sabina Winqvist frá Svíþjóð varð í öðru sæti með 4928 stig og Katrine Haarklau frá Noregi varð í þriðja sæti með 4872 stig.