Formúla 1

Hamilton: Slakur árangur olli svefnleysi

Lewis Hamilton hefur aðeins unnið eit tmót á árinu með McLaren.
Lewis Hamilton hefur aðeins unnið eit tmót á árinu með McLaren.

Lewis Hamilton hefur átt margar svefnlausar nætur á þessu ári, vegna þess að gengi McLaren liðsins hefur ekki verið upp á marga fiska. Þetta kemur fram í viðtali við hann í þættinum Rásmarkið kl. 21.00 í kvöld á Stöð 2 Sport.

"Ég hef stefnt á sigur allt mitt líf og hef ekki getað náð þeim árangri sem ég vildi, þar sem bíllinn bauð ekki upp á það. Það hefur verið niðurdrepandi og ég hef átt margar svefnlausar nætur af áhyggjum. Ég vil sýna fólki að ég er sá besti, en það hefur ekki verið hægt", sagði Hamilton m.a. í viðtalinu.

Hamilton á ekki möguleika á meistaratitilinum, en vann eitt mót í Ungverjalandi, en mögulegur sigur klúðraðist um síðustu helgi þegar þjónustuhlé mistókst hjá McLaren og Rubens Barrichello hirti fyrsta sætið.

Í þættinum í kvöld ræðir Hamilton við Niki Lauda um gengi sitt á árinu og hvernig hann lítur á stöðu mála. Í þættinum er einnig rætt við Stefano Domenicali hjá Ferrari um gengi nýliðans Luca Badoer hjá liðinu.

Þá lýsir Kristján Einar Kristjánsson því hvnerig er að keyra Spa brautina sem keppt veðrur á um næstu helgi og Jón Ingi Þorvaldsson, nýkrýndur meistari í kart kappakstri verður gestur þáttarins líka.

Sjá brautarlýsingu frá Spa




Fleiri fréttir

Sjá meira


×