Handboltinn heldur áfram að rúlla í kvöld en þá fara fram tveir leikir í N1-deild karla.
Stórleikur kvöldsins hófst núna klukkan 18.30 í Vodafonehöllinni þar sem Valur tók á móti liði Akureyrar.
Valsmenn tefla fram sterku liði sem fyrr og Akureyri hefur styrkt sig nokkuð frá síðustu leiktíð. Bíða því margir spenntir eftir leik liðanna í kvöld.
Klukkan 19.30 mætast síðan HK og FH í Digranesi.
Báðum leikjum verða gerð ítarleg skil á Vísi síðar í kvöld.