Forráðamenn Real Madrid hafa miklar áhyggjur af ökklameiðslum Cristiano Ronaldo en nýjasta nýtt er að Ronaldo gæti þurft að fara í aðgerð vegna meiðslanna.
Það myndi þýða að hann gæti ekki leikið meira á þessu ári.
Hollenski skurðlæknirinn Niek van Dijk segir að Ronaldo megi ekki spila fyrr en í fyrsta lagi þann 20. nóvember. Hann segir að fram að þeim tíma eigi leikmaðurinn að vera í meðferð þar sem fylgst sé ítarlega með því hvernig ökklinn bregðist við æfingum.
Ef hann bregðist ekki vel við sé lítið annað að gera en senda Ronaldo undir hnífinn.