Gengi hlutabréfa í Kaupþingi sem skráð eru í kauphöllina í Stokkhólmi í Svíþjóð hefur hækkað um 1,3 prósent í dag. Þetta er nokkuð í samræmi við þróunina á erlendum hlutabréfamörkuðum það sem af er dags eftir skell víða um heim í gær, að Bandaríkjunum undanskildum.
Hækkunin á helstu mörkuðum í dag skýrist af bjartsýni fjárfesta á að fulltrúaþing Bandaríkjaþings samþykki björgunaraðgerðir ríkisstjórnarinnar eftir að hafa fellt þær á mánudag. Afleiðingar þess skiluðu sér í miklu verðfalli víða um heim.
Björgunaraðgerðir stjórnvalda fela í sér stofnun nokkurs konar ruslasjóðs sem kaupa muni verðlausar eignir bandarískra banka og fjármálafyrirtækja sem tengjast þarlendum fasteignalánum fyrir 700 milljarða Bandaríkjadala.
Kosið verður um málið vestanhafs í dag.
FTSE-vísitalan hefur hækkað um 1,8 prósent, Dax-vísitalan í Þýskalandi hækkað um 0,08 prósent og CAC-40 vísitalan í Frakklandi hækkað um 0,75 prósent.
OMX-40 vísitalan hefur hækkað um 2,69 prósent. Þar af hefur C-20 vísitalan í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í Danmörku hækkað um 2,8 prósent, vísitalan í Stokkhólmi í Svíþjóð hækkað um 1,3 prósent og sú í Helsinki í Finnlandi farið upp um 2,53 prósent.