Handbolti

Ólafur með fimm mörk í sigri Ciudad Real

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk fyrir Ciudad Real í kvöld.
Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk fyrir Ciudad Real í kvöld. Nordic Photos / AFP

Ciudad Real vann í kvöld öruggan sigur á Teka Cantabria í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta, 31-20.

Ólafur skoraði fimm mörk í leiknum en Ciudad Real er nú með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar eftir að Sigfús Sigurðsson og félagar í Ademar Leon unnu sigur á Barcelona, 25-24.

Ciudad Real er í efsta sæti deildarinnar með 40 stig en Barcelona í því öðru með 37 stig.

Portland San Antonio og Ademar Leon koma næst með 34 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×