Frábær sigur hjá KR í Njarðvík 7. febrúar 2008 20:50 Helgi Magnússon var frábær í síðari hálfleik í kvöld
Íslandsmeistarar KR sýndu mikla seiglu í kvöld þegar þeir lögðu Njarðvíkinga 106-97 í frábærum og sveiflukenndum leik liðanna í Iceland Express deild karla. Njarðvíkingar höfðu 10 stiga forystu eftir fyrsta leikhlutann og 16 stiga forystu í hálfleik 60-44. Eftir það hresstust vesturbæingar og komu sér inn í leikinn og unnu að lokum nokkuð öruggan sigur. Lið Njarðvíkur var heillum horfið á köflum í síðari hálfleiknum og miklu munaði þar um að Damon Bailey fékk þar sína 4. villu. Joshua Helm og Helgi Magnússon vor að öðrum ólöstuðum bestu menn KR í leiknum, en Helgi var mjög drjúgur í síðari hálfleiknum og virtist hressast til muna eftir að Hörður Axel Vilhjálmsson sló hann óvart í andlitið um miðbik leiksins. "Við spiluðum eins og ræflar í fyrri hálfleik, en fórum að spila vörn í seinni hálfleiknum. Þá small þetta allt hjá okkur, því það er nóg af mönnum sem geta skorað hjá okkur," sagði Helgi Magnússon í samtali við Sýn eftir leikinn. Hann var spurður út í höggið sem hann fékk óvart frá Herði. Benni þjálfari sagði okkur að hætta að láta þá lemja okkur og hrinda okkur. Þetta kemur svo allt af sjálfu sér þegar við förum að spila fantavörn," sagði Helgi. Keflvíkingar gerðu góða ferð í Breiðholtið og lögðu ÍR 88-77 og sitja því enn í toppsæti deildarinnar með 28 stig, en KR hefur 26 stig í öðru sæti. Skallagrímur er í fjórða sætinu með 20 stig eftir sigur á Fjölni í Grafarvogi í kvöld 79-66. Umfjöllun um leikinn kemur hér á Vísi í fyrramálið en tölfræðin síðar í kvöld.
Dominos-deild karla Mest lesið Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Körfubolti Fylkir og Valur í formlegt samstarf Körfubolti Sögðu Betu að drulla sér frá Belgíu: „Nýtt fyrir mér“ Fótbolti Fyrrum leikmaður United til liðs við Arsenal Fótbolti Uppgjörið: Egnatia - Breiðablik 1-0 | Grátlegt tap í Albaníu Fótbolti Pedro skaut Chelsea í úrslitin Fótbolti Ísland í öðru sæti eftir fyrsta keppnisdag á Evrópumótinu Golf Óska eftir að að fyrsta leik deildarinnar verði frestað Fótbolti Stúkumenn ekki sammála um hvort Valsmenn geti orðið meistarar Íslenski boltinn EM í dag: Nótt á spítala, hræddir blaðamenn og nammi frá Betu Fótbolti Fleiri fréttir Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Sjá meira