Í dag var dregið í undanúrslitin í Lýsingarbikar karla og kvenna í körfubolta. Grannarnir Grindavík og Keflavík drógust saman í fyrri undanúrslitaleiknum í kvennaflokki en hinn leikurinn verður viðureign Hauka og Fjölnis.
Í karlaflokki verður stórleikur í Ljónagryfjunni í Njarðvík þar sem heimamenn taka á móti Snæfelli. Í hinni viðureigninni taka Skallagrímsmenn á móti Fjölni í Borgarnesi.
Undanúrslitaleikirnir fara fram helgina 2.-3. febrúar.