Fótbolti

Sevilla mætir Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður á hér í höggi við Christian Poulsen, leikmann Sevilla.
Eiður á hér í höggi við Christian Poulsen, leikmann Sevilla. Nordic Photos / Getty Images

Í dag var dregið í 16-liða úrslit spænsku bikarkeppninnar og bar þar helst til tíðinda að Sevilla mætir Barcelona.

Þetta er í fyrsta sinn í sögu keppninnar sem aðeins lið úr úrvalsdeildinni eru í 16-liða úrslitum keppninnar.

Leikið verður heima og að heiman. Fyrri leikirnir fara fram á miðvikudaginn og síðari leikirnir viku síðar.

Leikirnir:

Sevilla - Barcelona

Recreativo Huelva - Villarreal

Real Zaragoza - Racing Santander

Mallorca - Real Madrid

Athletic Bilbao - Espanyol

Real Betis - Valencia

Atletico Madrid - Valladolid

Getafe - Levante




Fleiri fréttir

Sjá meira


×