Fótbolti

Drogba með slitin krossbönd?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Didier Drogba í leiknum í kvöld.
Didier Drogba í leiknum í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Óttast er að Didier Drogba hafi slitið krossbönd í hné er Chelsea gerði markalaust jafntefli við Cluj í Rúmeníu í kvöld.

Drogba er nýbúinn að jafna sig á hnémeiðslum og fór frá leikvanginum í kvöld á hækjum.

Luiz Felipe Scolari, stjóri Chelsea, sagði að John Terry og Alex hefðu einnig orðið fyrir meiðslum í leiknum. Ashley Cole myndi hins vegar ná sér fyrir helgina en hann missti af leiknum í kvöld vegna meiðsla.

Michael Essien er frá í langan tíma vegna krossbandaslita og þá eru þeir Joe Cole, Deco og Ricardo Carvalho einnig meiddir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×