Evrópskir seðlabankar dæla fé inn á markaði 19. september 2008 10:41 Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri Bandaríkjanna. Mynd/AFP
Seðlabankar á meginlandi Evrópu ákváðu í dag að veita rúmum 60 milljörðum evra, jafnvirði um 8.400 milljarða íslenskra króna, inn í fjármálakerfið til að hífa upp væntingar, blása lífi í millibankalánamarkaðinn og koma í veg fyrir frekari hremmingar á mörkuðum. Evrópski seðlabankinn og Englandsbanki tilkynntu báðir að þeir ætli að opna glugga fyrir lánveitingar upp að 28 milljörðum evra hvor inn í fjármálakerfið til að hleypa lífi í markaðinn og koma í veg fyrir alvarlega lausafjárþurrð. Þá ætlar seðlabanki Sviss að gera bönkum og fjármálafyritækjum kleift að sækja sér allt að sjö milljarða evra til að skrúfa fyrir lánveitingar á millibankamarkaði. Þetta er fjórða innspýting seðlabankanna í vikunni auk þess sem seðlabanki Bandaríkjanna gerði gjaldeyrisskiptasamninga við seðlabanka víða um heim í gær, svo sem við seðlabanka Japans, Bretlands og Kanada, sem gerir þeim kleift að sækja sér bandaríkjadali til að slá á lausafjárþurrð með erlendan gjaldeyri, samkvæmt upplýsingum Associated Press-fréttastofunnar.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Viðskipti innlent Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Minnstu sparisjóðirnir sameinast Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir Viðskipti innlent Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira