Spænska liðið Atletico Madrid hefur fengið franska landsliðsmarkvörðinn Gregory Coupet frá Lyon. Coupet er 35 ára og hefur allan sinn feril leikið í heimalandinu.
Coupet á 33 landsleiki fyrir franska landsliðið sem er úr leik á Evrópumótinu sem nú stendur yfir.